Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á eldhúsum og böðum og til endurnýjunar á þaki sbr. nýsamþykkt erindi BN044587 og til undanþágu frá byggingarreglugerð 112/2012, 6.-16. hluta fyrir fjölbýlishús á tveimur hæðum með kjallara og rishæð á lóð nr. 15 við Bergþórugötu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.