Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem íbúð 0202 er stækkuð á kostnað íbúðar 0201 í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 7 við Bræðraborgarstíg. Jákvæð fyrirspurn BN044789 fylgir dags. 24. júlí 2012. Gjald kr. 8.500 + 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.