Fyrirspurn
Spurt er hvort leyft yrði að byggja 60cm djúpar svalir á suðurhlið (götuhlið) annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 53A við Vesturgötu.
Umsögn skipulagsstjóra (vegna fyrirspurnarerindis BN044732) dags. 16.07.2012 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. ágúst 2012 og umsögn skipulagsstjóra dags. 16. ágúst 2012.