Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum bílskúr á lóðinni nr. 48 við Nökkvavog. Ný skráningartafla fyrir matshluta 02 fylgir erindinu. Samþykki meðeigenda dags. 04.09.2012 fylgir erindinu. Stærð: Bílskúr 32.8 ferm. og 85,7 rúmm. Gjald kr. 8.500 + 7.285
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.