Spurt er hvort leyft yrði að lagfæra og stækka bílskúr sem er illa farinn og jafnframt byggja tæplega 59 fermetra einnar hæðar nýbyggingu á lóðinni nr. 25 við Rafstöðvarveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. ágúst 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 27. nóv. 2008.
Svar
Jákvætt. Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 24. ágúst 2012. Fyrirspyrjandi skal hafa samband við embætti skipulagsstjóra.