Spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir og innrétta íbúð í skrifstofurými 0302 á þriðju hæð hússins á lóðinni nr. 5 við Barónsstíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. september 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. september 2012.
Svar
Jákvætt. Með vísan til umsagnar byggingarfulltrúa á fyrirspurnarblaði og umsagnar skipulagsstjóra frá 21. september og 10. september 2012. Sækja þarf um byggingarleyfi.