Fyrirspurn
Spurt er hvort leyft yrði að breyta atvinnuhúsnæði á fyrstu og annarri hæð í tvær sjálfstæðar íbúðir í matshluta 03 á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 5. október 2012 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 28. september 2012.