Sótt er um leyfi til að opna út í garð á norðurhlið með tvöfaldri hurð og palli, reisa 2metra háa skjólveggi úr timbri við norðvestur og norðaustur horn á einbýlishúsinu á lóð nr. 26 við Hringbraut. Umsögn burðarvirkshönnuðar dags. 26. nóv. 2012 og samþykki meðeigenda (ódags. og í tölvupósti dags. 3. des. 2012) fylgja erindinu. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.