Sótt er um leyfi til að breyta rými 6. og 7. hæðar þar sem innrétta á eldhús sem tengist starfsemi þessara svæða og aðrar innri breytinga í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu á lóð nr. 2 við Austurbakka. Bréf frá hönnuði dags. 20. nóv. 2012. Gjald kr. 8.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.