Sótt er um leyfi til að lengja 1. og 2. hæð núverandi húshluta auk viðbyggingar á 1. hæð til vestur í húsinu á lóð nr. 6 við Vesturbrún. Umsögn skipulagsstjóra dags. 8. nóv. 2012 og tölvupóstur frá hönnuði dags. 28 jan. 2013 fylgja erindinu. Stækkun: 101,4 ferm. 398,7 rúmm. Gjald kr. 9.000 + 35.883
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 101, 111, 311, 411 og 412 dags. 3. janúar 2013.