Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja veitingahús á fyrstu hæð og hótel á efri hæðum hússins á lóðinni nr. 16 við Austurstræti. Bréf hönnuðar dags. 24. janúar 2013 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. febrúar 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. febrúar 2013
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi.