Sótt er um leyfi til þess að innrétta íbúð í húsnæði sem skráð er vörugeymsla á annarri hæð í matshluta 02 á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu. Samþykki meðeigenda dags. 15. nóvember 2012 (og á teikn.) fylgir erindinu. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.