Spurt er hvort nýta megi ca 6000 fermetra fyrir 3-4 bílasölur með stöðuleyfi fyrir 3-4 60 ferm. aðstöðuhús á lóðinni nr. 10 við Malarhöfða. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013.
Svar
Jákvætt. Með vísan til leiðbeininga í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2013. Sækja þarf um byggingarleyfi og stöðuleyfi til byggingarfulltrúa.