Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu vegna raðhúss á lóðinni nr. 11-15 við Haukdælabraut, erindi nr. BN045137. Bréf umsækjanda dags. 29. maí og 31. maí 2013 fylgja erindinu.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.