Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að stækka veitingastað með því að taka í notkun 2. hæð, innrétta 1. hæð upp á nýtt, fjölga gestum í 90 gesti, koma fyrir útiveitingum fyrir 40 gesti, breyta stiga og koma fyrir glugga á norðurhlið hússins nr. 3B á lóð nr. 3A-3B.
Jafnframt er sótt um að færa starfsmannaaðstöðu, lager, kæli og frysti á lóð nr. 5B. við Geirsgötu, sjá erindi BN045804.
Samþykki eigenda fylgir á Teikningum A3 ódags. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 15 apríl 2013 og hljóðvistaskýrsla dags.18 apríl 2013 fylgja. .
Gjald kr. 9.000 + 9.000