Sótt er um leyfi til að rífa forstofu og kvisti og endurbyggja og hækka mæni þaks, endurbyggja kvisti og byggja viðbyggingu og svalir á vesturhlið einbýlishúss á lóð nr. 13 við Hlíðargerði. Niðurrif: 5,8 ferm., 27,6 rúmm. Stækkun: 1. hæð 7 ferm., 18,9 rúmm., 2. hæð 6,3 ferm., 70,5 rúmm. Samtals 13,3 ferm., 89,4 rúmm. Gjald kr. 9.000 + 55.350
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1, 2, 3, 4, dags. 27. febrúar 2013. Sigrún Reynisdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.