Fyrirspurn
Spurt er hvort leyfi fengist til að bæta hæð ofan á húsið, byggja svalir við þá hæð og stigi af þeim út á þaksvalir yfir bílskúr einnig hvort byggja megi sólstofu við austurhlið hússins á lóðinni nr. 59 við Efstasund.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. mars 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. mars 2013.
Teikningar á A4 fylgja