Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til breytinga innanhúss á 1. hæð og innrétta fyrir Sögusafnið ásamt veitingasal fyrir 45 gesti í flokki II, kaffihús, sölu minjagripa og með aðstöðu til myndsýninga fyrir 10-20 manns, endurnýja þakjárn, lagfæra veggi með endurgerð glugga og hurða, rífa byggingu í sundi milli matshluta í áföngum og gera nýjan inntaksklefa í Alliance húsinu á lóð nr. 2 við Grandagarð.
Meðfylgjandi er umsög Minjasafns Reykjavíkur dags. 21.3. 2013, einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5.4. 2013 og bréf arkitekts dags. 16.4. 2013 og minnisblað vegna eldvarna dags. 16.4. 2013.
Gjald kr. 9.000