Spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr fyrir íbúð annarrar hæðar hússins á lóðinni nr. 38 við Freyjugötu. Einnig er spurt um stærð og staðsetningu bílskúrsins ef leyfi fengist til þess að byggja hann. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 12. apríl 2013 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2013.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2013. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.