Fyrirspurn
Byggingarfulltrúi leggur til að lóðir og lönd vestan Vesturlandsvegar milli Leirvogsár og Kollafjarðar verði tölusett við Vesturlandsveg eins og hér segir:
Land í eigu framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, landnúmer 218831, nú skráð, "Fitjakot spilda 4", fái staðfang sem Vesturlandsvegur 99.
Land í eigu framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, landnúmer 218830, nú skráð, "Fitjakot spilda 3", fái staðfang sem Vesturlandsvegur 101.
Land í eigu framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, landnúmer 125843, nú skráð, "Blásteinar", fái staðfang sem Vesturlandsvegur 103. Undirheiti má vera Blásteinar.
Land í eigu framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, landnúmer 218828, nú skráð, "Fitjakot spilda 1", fái staðfang sem Vesturlandsvegur 105.