Fyrirspurn
Spurt er hvort leyft yrði að færa þvottaaðstöðu inn í hitaklefa og innrétta tvær íbúðir í rýmum sem eru merkt "straustofa, þvottavél, þurrkklefi og óráðstafað", alls u.þ.b. 90 fermetrar á jarðhæð fjölbýlishúss á lóðinni nr. 52-56 við Bólstaðahlíð.
Í húsinu yrðu samtals 28 íbúðir eftir breytinguna. Bílastæði á lóð eru 28 talsins.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. apríl 2013 fylgir erindinu.