Spurt er hvort leyft yrði að starfrækja veitingastað í flokki I eða flokki II á fyrstu hæð hússins nr. 27 á lóðinni nr. 27-29 við Snorrabraut. Jafnframt er til vara spurt hvort leyft yrði að reka hótelíbúðir í sama húsnæði. Bréf hönnuðar dags. 9. apríl 2013 fylgir erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. apríl 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl 2013.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við rekstur veitingahúss í flokki I eða II. Ekki er heimilt að reka hótel íbúðir á 1. hæð samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. apríl. Sækja þarf um byggingarleyfi.