Spurt er hvort breyta megi ónotuðu skrifstofurými á 2. hæð, 0201, í íbúð eins og gert var við rými 0301 í húsi á lóð nr. 96 við Laugaveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. maí 2013 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagafulltrúa frá 17. maí 2013.