Sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem svæði 0103 og 0201 sem var notað fyrir leikhús hefur verið breytt í líkamsræktarstöð í húsinu á lóð nr. 2 við Seljaveg. Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.