Fyrirspurn
Spurt er hvort leyft yrði að útbúa tvennar svalir á suðurhlið rishæðar og breyta innra skipulagi íbúðar eins og sýnt er á áður samþykktum teikningum af íbúð í risi íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 11 við Bankastræti.
Útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa frá 12. júlí 2013 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15.07.2013 fylgja erindinu.