Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN045775 sem samþykkt var þann 9. apríl 2013 þannig að settur verður lagnastokkur í miðju húss, sameina bað og þvottaherbergi, hringstigar í íbúð 0304 og 0301 breytast í stiga, aðrir hringstigar minnka og koma fyrir sturtuaðstöðu 0101 til 0105 í húsinu á lóð nr. 14-16 við Tangabryggju. Bréf frá lagnahönnuði dags. 30. júlí 2013. Gjald kr. 9.000 + 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.