Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir jarðvinnu, lögnum í grunni og undirstöðum hússins á lóðinni nr. 29 við Lambhagaveg, mhl.02 sbr.(BN045705).
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.