Sótt er um takmarkað byggingarleyfi til að hefja undirbúning athafnasvæðisins, undirbúa svæði fyrir vinnubúðir stýriverktaka og vegna graftrar fyrir bygginguna sjálfa og gerð settjarnar á framkvæmdatímanum á lóðinni nr. 15 - 19 við Sæmundargötu.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.