Sótt er um leyfi til að byggja 1. áfanga hótels á Hljómalindarreit, mhl. 01 sem er fimm hæða steinsteypt hús með 55 herbergjum og móttöku og mhl. 02 sem er einnar hæðar bílgeymslukjallari fyrir 25 bíla á lóð nr. 4 við Smiðjustíg. Meðfylgjandi er minnisblað vegna eldvarna frá Eflu dags. 6.9. 2013. Stærð mhl. 01: 1. hæð 322,2 ferm., 2. hæð 435,9 ferm., 3. og 4. hæð 488 ferm. og 5. hæð 349,5 ferm. Samtals: 2.083,6 ferm., 7.429,5 rúmm. B-rými 162 ferm. Mhl. 02: 649,3 ferm., 2.247,4 rúmm. Gjald 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.