Spurt er hvort leyfi fengist til að breyta aðalinngangi veitingahúss, koma fyrir trépalli á suðurhlið, fækka bílastæðum um þrjú og breyta lóð hússins á lóð nr. 21 A við Borgartún. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. október 2013 fylgir erindinu.
Svar
Jákvætt. Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. október 2013.