Sótt er um leyfi til að byggja nýja spennistöð í norðvesturhorni lóðar í stað annarrar í kjallara hússins, til að fella niður nýsamþykktan stoðvegg að Háaleitisbraut og breyta fyrirkomulagi lóðar, en við það fækkar bílastæðum um þrjú, sjá erindi BN045986 og BN046276, verslunar- og skrifstofuhúss á lóð nr. 1 við Ármúla. Bílastæði á lóð eftir breytingu samtals 89. Spennistöð: 20,9 ferm., 72,1 rúmm. Gjald kr. 9.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.