Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í kjallara og að skrá kjallaraíbúð sem séreign í húsinu á lóðinni nr. 10 við Tunguveg. Skráningartafla fylgir erindinu. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.