Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og stækka "ósamþykkta íbúð" í kjallara en minnka jafnframt sameignarrými í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3 við Laugarásveg. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 23. desember 2013. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.