Sótt er um leyfi til þess að stækka millipall í matshluta 08 í húsinu á lóðinni nr. 1 við Bæjarháls. Samþykki eigenda og meðeigenda (ódags.) fylgir. Brunahönnunarskýrsla dags. 3. desember 2013 fylgir. Stækkun millipalls: 153,5 ferm. Gjald kr. 9.000 kr.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.