Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að innrétta gistiheimili með sjö herbergjum og gistiaðstöðu fyrir 14 gesti á fyrstu hæð atvinnu- og íbúðarhússins á lóðinni nr. 1 við Bræðraborgarstíg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. desember 2013.
Umsækjandi er eigandi að öllu húsinu.
Gjald kr. 9.000