Vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar er sótt um samþykki fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi, aðallega í kjallara og á rishæð hússins á lóðinni nr. 60 við Ægisíðu. Samningur um sambyggingu og sameign dags. 15. nóvember 1953 og virðingargjörð dags. 15. janúar 1958 fylgja erindinu. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.