Sótt er um leyfi til að færa þvottahús og fjarlægja eldvarnarvegg á milli geymslukjallara og íbúðar í mhl. 01 rými 0001, koma fyrir svölum á 1. hæð á íbúðum í mhl. 01 og 02 lækka og aðlaga lóð til samræmis við aðliggjandi lóðir og koma fyrir staðsteyptum útitröppum sitt hvoru megin við húsið á lóð nr. 3-5 við Freyjubrunn. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2014. Gjald kr. 9.000
Svar
Synjað. Samræmist ekki deiliskipulagi samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2014.