Sótt er um samþykki á þegar gerðum breytingum sem felast í tilfærslu innveggja, speglun íbúða, breyttu sorpgerði og breyttum svölum á stúdentagörðum, sbr. erindi BN044447, í húsi nr. 18 á lóð nr. 14-20 við Sæmundargötu. Gjald kr. 9.000 + 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.