Sótt er um samþykki á þegar breyttu fyrirkomulagi sem felst í því að rennihurðum er breytt í flekahurðir og fyrirkomulagi tækja er breytt í eldhúsi og á baði, sbr. erindi BN043111, í íbúð 1119 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 65-67 við Kristnibraut. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.