Sótt er um leyfi til að byggja þrjár hæðir ofan á eldra hús og innrétta 20 íbúðir í ofanábyggingunni, 1. hæð verður verslun og kjallari verður innréttaður sem geymslur og bílgeymslur fyrir sex bíla í Skipholti 11-13 á lóðinni Brautarh 10-14/Skiph. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2014. Erindi fylgir varmatapsútreikningur dags. 12. janúar 2014. Stækkun: 1.867,1 ferm., 5.282,8 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.