Sótt er um leyfi til breytinga á erindi BN046869 sem gert var vegna breytinga á erindi BN045300 sem fól í sér að ákvæði byggingarreglugerðar nr. 441/1998 gilti fyrir Mánatún 7-17 með síðari breytingum skv. ákvæði til bráðabirgða í gr. 17.1.2. í nýrri byggingarreglugerð nr. 112/2012, breytingar nú eru gerðar í stigahúsi nr. 15 fela í sér lóðarstækkun til vesturs að Nóatúni vegna breyttrar aðkomu að hjóla-, vagna- og sorpgeymslum um tröppur og skábrautir þar sem kjallaraplata lækkar, fyrirkomulagi er einnig breytt í kjallara K-0 og einni íbúð bætt við á 1. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 7-17 við Mánatún 1-17/Sóltún 1-3. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 14.1. 2013. Stærðir. Stækkun: A-rými, 134,3 ferm., 365,4 rúmm. Stækkun: B-rými, 9,2 ferm. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.