Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, staðsteypta neðri hæð og efri hæð úr steinsteyptum einingum á lóð nr. 16 við Úlfarsbraut. Stærð: Kjallari 68,7 ferm., 1. hæð 187,6 ferm.( þar af bílgeymsla 48,4 ferm. Samtals 256,3 ferm., 910,7 rúmm. B-rými 19 ferm., 53,5 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.