Viðbygging við Klettaskóla
Suðurhlíð 9 01.78.040.1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 770
11. mars, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um að byggja við mhl. 01 og 02, viðbyggingu við Klettaskóla, sundlaug, íþróttahús, hátíðarsal, stjórnunarálmu, félagsmiðstöð, nýtt aðalanddyri og breyta innra fyrirkomulagi í öllu núverandi húsi á lóð nr. 9 við Suðurhlið.
Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 28. feb. 2014 og tölvupóstur frá Garðari Guðnasyni dags. 28. jan. 2014 Hljóðvistarskýrsla dags. 10 feb. 2014, Varmatapsútreikningar ódags. fylgja.
Stækkun: mhl. 01 25,4 ferm., 71,6 rúmm. mhl. 02 3.938,4 ferm. 16.498,9 rúmm. Samtals stækkun: 3.963,8 ferm. 16.570,5 rúmm.
Gjald kr. 9.500
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

105 Reykjavík
Landnúmer: 107506 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021976