Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga hótels á Hljómalindareit, staðsteypt hús á fimm hæðum sem í verða 64 herbergi, fjórar íbúðir, veitingasalur, eldhús og verslunarrými á aðgönguhæðum húsa á lóð nr. 34 við Hverfisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. janúar 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2014.
Niðurrif: 309,1 ferm.
Nýbygging: Kjallari 158,4 ferm., 1. hæð 139,9 ferm., 2. hæð 149,4 ferm., 3. og 4. hæð 160,2 ferm., 5. hæð 133,9 ferm.
Samtals 902,0 ferm., 3.121,6 rúmm.
Gjald kr. 9.500