Sótt er um leyfi til þess að breyta íbúðarhúsi í gistiheimili í flokki II fyrir allt að tíu gesti í húsi nr. 2B, matshluta 02, á lóðinni nr. 2 við Grettisgötu. Móttaka gististaðarins verður staðsett í gistiheimilinu að Grettisgötu 2A, sömu eigendur eru að báðum húsunum. Samþykki meðlóðarhafa dags. í desember 2013 fylgir erindinu. Gjald kr. 9.500
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.