Sótt er um leyfi til að rífa mhl. 01, mhl. 02 og hluta mhl. 03 sem eru skemmur bak við skrifstofuhús á lóð nr. 4 við Þórunnartún. Niðurrif mhl.01: 330 ferm., 1.583 rúmm., mhl. 02: 190,6 ferm., 753 rúmm., mhl. 03: 204,7 ferm., 810,9 rúmm., yfirbyggt rými (óskráð): 141,2 ferm., 650,4 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst að niðurrifi loknu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.