Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta útliti og innra fyrirkomulagi og jafnframt breyta atvinnuhúsnæði sem skráð er fjórar eignir í tvær vinnustofur með íbúðaraðstöðu á fyrstu hæð hússins nr. 2C á lóðinni nr. 2 við Starmýri.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Umsagnir skipulagsfulltrúa varðandi áður afgreidd erindi dags. 6. maí og 27. september 2013 fylgja erindinu ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. mars 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. mars 2014.
Gjald kr. 9.500