Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús, Einholt 12, mhl. 09, á lóð nr. 15-21 við Þverholt.
Erindi fylgir brunahönnun frá VSI dags. 25. febrúar 2014, greinargerð vegna hljóðvistar dags. í febrúar 2014 og útreikningur á varmatapi ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. mars 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2014.
Stærð: Kjallari 280,3 ferm., 1. hæð 476,9 ferm., 2. hæð 508,4 ferm., 3. hæð 543,2 ferm., 4. hæð 523,3 ferm.
Samtals 2.332,1 ferm., 7.462,2 rúmm.
Gjald kr. 9.500