Sótt er um leyfi til að færa í flokk III úr flokki II veitingahús á fyrstu hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 40 við Skólavörðustíg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. mars 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2014. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Þinglýsa skal kvöð um opnunartíma til kl. 23:00 virka daga og til kl .01:00 um helgar/frídaga.