Fyrirspurn
Spurt er hvort leyft yrði að koma fyrir svölum á suðurhlið og breyta annað hvort í stóra íbúð eða lítið gistiheimili skrifstofuhúsnæðinu á fjórðu hæð hússins á lóðinni nr. 10A við Austurstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 28. mars 2014 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. mars 2014.